Viðskipti erlent

Vilja setja 1700 milljarða króna í bílaiðnaðinn

Bílaiðnaðurinn í Bandaríkjunum stendur afar illa um þessar mundir.
Bílaiðnaðurinn í Bandaríkjunum stendur afar illa um þessar mundir.
Demókratar í fulltrúadeild Bandaríkjaþings vilja verja 15 milljörðum bandaríkjadala, eða 1700 milljarða íslenskra króna, til að styðja við bílaframleiðendur í Bandaríkjunum. Heimildarmenn AFP fréttastofunnar segja óvíst að Bush forseti samþykki hugmyndina.

Forsvarsmenn bílaframleiðandanna General Motors, Ford og Chrysler segjast þurfa 34 milljarða dala, 3800 milljarða króna, til þess að koma í veg fyrir að bílaiðnaðurinn í Bandaríkjunum hrynji og miðað við þær tölur hrekkur hugmynd demókrata skammt.

En hugmyndir demókrata ganga út á að halda framleiðendunum á floti þangað til í mars og gefa þannig tilvonandi forseta, Barack Obama, færi á því að meta hlutina eftir að hann tekur við embætti þann 20 janúar næstkomandi.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×