Viðskipti erlent

Brunaútsala í Woolworths eftir að kaupandi gekk af skaftinu

Allar vörur rúmlega 800 verslunum Woolworths verða selda með 50% afslætti eftir að athafnamaðurinn Theo Paphities hætti við að kaupa keðjunna. Baugur er meðal eigenda Woolworths.

Neville Khan hjá Deloitte sem sér nú um rekstur Woolworths segir í samtali við Timesonline að þeir hafi bætt við sig starfsfólki þar sem reiknað er með stóraukinni sölu í kjölfar þess að brunaútsalan var ákveðin.

Lokafrestur til að skila inn tilboðum í eigur Woolworths rann út um miðja vikuna. Nokkur boð bárust í einstaka verslanir Woolworths frá m.a. Tesco, Waitrose og Asda.

Og nú hefur sir Richard Branson blandast inn í málið en félag hans Virgin Group gæti þurft að greiða Woolworths allt að 70 milljónir punda eða rúmlega 1,4 milljörðum kr.. Þetta stafar af því að tónlistarkeðjan Zavvi skuldar Woolworths þessa upphæð.

Zavvi var áður í eigu Virgin en er Virgin seldi hana frá sér var kveðið á um í söluskilmálunum að Virgin myndi ábyrgjast kaup á vörum frá Woolworths til Zavvi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×