Hollensk stjórnvöld eignast hlut í ING 19. október 2008 20:51
Hollenski bankinn og tryggingafyrirtækið ING mun fá 10 milljarða evra í stuðning frá hollenska ríkinu. Þessi niðurstaða var gerð opinber í dag eftir funahöld forsvarsmanna bankans við hollenska seðlabankann og fjármálaráðuneytið. Þetta þýðir að hollenska ríkið mun eignast 8,5 prósenta hlut í ING en félagið gerir ráð fyrir því að tapa 500 milljón evrum á þriðja ársfjórðungi. Hollenska ríkisstjórnin hefur einnig gefið út að 20 milljarðar evra verði settar til hliðar til þess að takast á vandamál efnahagskrísunnar sem nú dynur yfir heiminn. ING er á meðal stærstu banka heimsins með um 85 milljónir viðskiptavina um allan heim. Að sögn Reuters er bankinn með rúmlega 338 milljarða evra í innlánum og á skammtímareikningum. Fjármálaráðherra Hollands segir að bankinn hafi þurft á aðstoð að halda í þeim þrengingum sem nú eru uppi en hann þvertók fyrir að ING væri í meiriháttar vandræðum. ING tók á dögunum yfir innistæður sparifjáreigenda í Bretlandi sem höfðu verið með innistæður sínar hjá Kaupþingi Edge.
Mest lesið Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Viðskipti innlent Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Viðskipti innlent Forstjóraskipti hjá Ice-Group Viðskipti innlent Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Viðskipti innlent Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Viðskipti innlent Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Viðskipti innlent Rukkuð vegna þegar greiddra bílastæða og fá engin svör Neytendur „Verið að auglýsa öryggi sem er falsöryggi“ Neytendur Fleiri fréttir Hagnaðist um 2,2 billjónir króna Gengi Novo Nordisk steypist niður Samkomulagið það besta mögulega í erfiðum aðstæðum Stærsti olíufundur Evrópu í áratug í Póllandi Hampiðjan kaupir ástralskan kaðlaframleiðanda Japanskir bílaframleiðendur í skýjunum eftir tollasamkomulag Hagnaðurinn af Labubu sagður hafa aukist um 350 prósent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Sjá meira