Flugvöllurinn festur í sessi 31. mars 2008 14:54 Þá er það ljóst. Flugvöllurinn verður áfram í Vatnsmýri. Fundur Kristjáns Möllers samgönguráðherra og Ólafs F. Magnússonar borgarstjóra lauk áðan með þeirri niðurstöðu að samgöngumiðstöð rís í hlíðarfætinum á milli Flugleiðahótelsins og Valsheimilisins, örskammt frá Landspítalanum. Borgin hefur eftirlátið ríkinu þessa lóð í hjarta borgarinnar svo þar megi rísa ný flugstöð fyrir allt innanlandsflug þar sem pláss verður og fyrir margs konar ferðaþjónustu; langferðabíla, strætisvagna, bílaleigur og tengda starfsemi. Þetta er sigur fyrir hollvini flugvallarins í Vatnsmýri. Þetta er ósigur andstæðinga flugvallarins. Borgin hefur nú 100 daga til að ganga svo frá lóðinni norðan hótelsins að þar megi hefjast handa við húsbyggingar sem skal verða lokið síðla á næsta ári. Í millitíðinni verður komið fyrir bráðabirgðaaðstöðu við norðurenda lóðarinnar fyrir aðra flugrekendur en Flugfélag Íslands. Gamli braggi FÍ verður loks rifinn og öll þjónusta við innanlandsflug flyst á einn og sama staðinn innan hálfs annars árs. Já. Með samgöngumiðstöð er flugvöllurinn festur í sessi. Miðstöðin verður táknmynd þess að hjarta innanlandsflugs á Íslandi verður áfram í Vatnsmýrinni. Það hvarflar ekki að nokkrum heilvita manni að stórhýsi að andvirði hundruð milljóna króna sé einhver bráðabirgðalausn. Bráðabirgðalausninni, sem Hanna Birna og Gísli Marteinn buðu upp á, var einfaldlega hafnað. Það er og niðurstaða fundarins í dag. Niðurstaðan er afdráttarlaus. Pólitískt verður hún ekki túlkuð nema á einn veg: Flugvöllurinn fer ekki. Það er nú ekki flóknara. Hvort sem mönnum líkar betur eða verr ... -SER. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mannamál Sigmundar Ernis Mest lesið Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson Skoðun