Kaupþing hækkar í Svíþjóð en íslenski markaðurinn lokaður 20. mars 2008 09:55 Sigurður Einarrsson, stjórnarformaður Kaupþings, og Hreiðar Már Sigurðsson forstjóri. Mynd/GVA
Gengi bréfa í Kaupþingi hefur hækkað um 4,4 prósent í OMX-kauphöllinni í Stokkhólmi í Svíþjóð í dag og gengi bréfa í finnska fjármálafyrirtækinU Sampo, sem Exista á tæpan fimmtungshlut í, lækkað um 1,1 prósent, í kauphöllinni í Helsinki í Finnlandi. Á sama tíma eru engin viðskipti með hlutabréf hér enda hlutabréfamarkaðurinn lokaður vegna Skírdagsins. Sama máli gegnir um kauphöllina í Kaupmannahöfn. Hlutabréfamarkaðurinn í Svíþjóð er opinn fram á miðjan dag en viðskipti munu vera opin í allan dag í OMX-kauphöllinni í Helsinki í Finnlandi, líkt og fram kemur á vefsíðu Kauphallar Íslands. Markaðirnir í Skandinavíu eru allir lokaðir á morgun, föstudaginn langa. Helstu hlutabréfavísitölur eru rauðar í dag, bæði í Skandinavíu og víðar í Evrópu. Samnorræna hlutabréfavísitalan OMX-40 hefur lækkað um 1,25 prósent, en hlutabréfavísitalan í kauphöllinni í Helsinki lækkað um 1,36 prósent. Þá hefur sænska hlutabréfavísitalan lækkað á sama tíma um 0,74 prósent. Þá hefur FTSE-vísitalan í kauphöllinni í Bretlandi lækkað um 0,73 prósent, Dax-vísitalan í Þýskalandi lækkað um 0,1 prósent og Cac-40 vísitalan í Frakklandi lækkað um 0,57 prósent. Nikkei-vísitalan hækkaði um 2,48 prósent í enda viðskiptadagsins í Japan í morgun.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Viðskipti innlent Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Sjá meira