Körfubolti

Signý best í umferðum 10-17

Elvar Geir Magnússon skrifar
Signý Hermannsdóttir.
Signý Hermannsdóttir. Mynd/Valli

Nú í hádeginu var úrvalslið umferða 10-17 í Iceland Express deild kvenna í körfubolta tilkynnt. Viðurkenningar voru veittar á veitingastaðnum Carpe Diem.

Þá var valinn besti leikmaðurinn í þessum umferðum en þar bar sigur úr býtum Signý Hermannsdóttir úr Val. Frammistaða Valsliðsins hefur vakið verðskuldaða athygli.

Besti þjálfarinn var valinn Igor Beljanski hjá Grindavík.

Úrvalsliðið:

Signý Hermannsdóttir, Val

Tiffany Roberson, Grindavík

Jovana Lilja Stefánsdóttir, Grindavík

Molly Peterman, Val

Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, KR

Besti leikmaðurinn:

Signý Hermannsdóttir, Val

Besti þjálfarinn:

Igor Beljanski, Grindavík




Fleiri fréttir

Sjá meira


×