Innlent

Fanginn lést úr meþadon eitrun

Það var að morgni laugardagsins 22. september sem fanginn fannst látinn í klefa sínum. Í fyrstu var talið að hann hefði dáið eðlilegum dauðdaga en samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi þá hefur krufning nú leitt í ljós að hann lést úr meþadoneitrun. Heimildir fréttastofu herma að manninum hafi verið gefið lyfið í vökvaformi og að krufningin hafi leitt í ljós að skammturinn sem hann fékk hafi verið innan leyfilegra marka. Rannsókn lögreglu stendur enn yfir og hefur lögreglan kallað eftir frekari upplýsingum frá sérfræðingum á þessu sviði. Hjá Lyfjastofnun fengust þær upplýsingar að meþadon sé afar sterkt verkjalyf sem einkum er gefið á sjúkrahúsum. Skammtastærð ráðist oftast af því hversu lengi menn hafa tekið lyfið en smám saman myndar fólk þol gegn því. Þá hefur meþadon líka verið notað til að afeitra heróínneytendur.

Samkvæmt heimildum fréttastofu var maðurinn ekki heróínfíkill. Skömmu áður en hann lést var hann að ljúka afplánun á Vernd en maðurinn hafði setið í 10 ár á Litla Hrauni. Ættingjar mannsins sögðu í samtali við fréttastofu að inná Vernd hafi honum orðið á mistök sem leiddu til þess að hann var sendur aftur á Litla Hraun. Strax og hann kom þangað hafi honum verið gefið meþadon. Ættingjarnir skilja ekki hvers vegna manninum var gefið lyfið og segja að hann hafi í mesta lagi átt við áfengisvandamál að stríða. Þá telja þau sig hafa heimildir fyrir því að handvömm hafi leitt til þess að maðurinn lést í klefa sínum og ætla því að stefna ríkinu.

Þegar fréttastofa hafði samband við fangelsismálastofnun hafði Páll Winkel fangelsismálastjóri ekki séð niðurstöður krufningarinnar. Hann sagði heilbrigðisþjónustu fangelsisins vera á ábyrgð heilbrigðisráðuneytisins en ef rannsókn leiði í ljós að fangavörður hafi gerst sekur um brot í starfi þá yrði það rannsakað sérstaklega. Að öðru leyti vildi hann ekki tjá sig um málið.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×