Formúla 1

Meistarinn hefur trú á Toyota

Jarno Trulli og Timo Glock í Köln í dag.
Jarno Trulli og Timo Glock í Köln í dag. Nordic Photos / Getty Images

Heimsmeistarinn í GP 2 mótaröðinni, Þjóðverjinn Timo Glock kveðst hafa mikla trú á góður brautargengi liðsins í Formúlu 1 á þessu ári. Glock var kynntur sem annar tveggja ökumanna liðsins á frumsýningu í Köln í Þýskalandi í dag.

„Það eru nokkur ár síðan ég keppti í Formúlu 1, en ég hef ekið í ýmsum mótaröðum undanfarinn ár og tel að ég verði fljótur að ná tökum á bílnum," sagði Glock á frumsýningunni í dag. Hann ekur með Jarno Trulli á spánýjum bíl, sem líkist nokkuð ökutæki McLaren að framanverðu.

„Þó mér hafi gengið vel undanfarinn ár, þá hefur það alltaf verið draumur minn að keppa í Formúlu 1. Ég ók í nokkrum mótum 2004 með Jordan. En ég hef þroskast sem ökumaður og persóna og líst vel á innviði Toyota liðsins," sagði Glock.

Toyota gekk ekki vel á síðasta ári og stjór fyrirtækisins hefur sett Formúlu 1 liðinu afarkosti. Liðinu er æltað að ná árangri á næstu tveimur árum, ellegar verði þátttaka Toyota í íþróttinni endurskoðuð.

Sjá nánar um Toyota bílinn á kappakstur.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×