Formúla 1

McLaren stefnir á titilinn á nýjum bíl

Gunnlaugur Rögnvaldsson skrifar
Lewis Hamilton og Heikki Kovalainen bregða á leik í dag.
Lewis Hamilton og Heikki Kovalainen bregða á leik í dag. Nordic Photos / Bongarts

McLaren Mercedes Formúlu 1 liðið frumsýndi nýtt keppnistæki sitt í Stuttgart í dag að viðstöddu fjölmenni.

Ökumenn liðsins verða Lewis Hamilton frá Bretlandi, sem sló í gegn í fyrra og Heikki Kovalainen frá Finnlandi. Hann ók með Renault í fyrra.

Mikið fjaðrafok varð innan McLaren liðsins í fyrra vegna samkeppni milli Hamilton og Fernando Alonso. Alonso þoldi illa velgengni Hamiltons og ákvað að hætta hjá liðinu, eftir ýmsar uppákomur milli hans og stjórnenda liðsins. Kovalainen tók því við sæti Alonso, sem fór aftur til Renault.

McLaren MP4-23 bíllinn sem var frumsýndur í bílasafni Mercedes í dag, er byggður eftir nýjum reglum sem verða í gildi í ár. Nýjungar eru m.a.

gírkassi úr koltrefjum og mikið breytt yfirbygging.

„Bíllinn er betri og ég er með nýjan liðsfélaga, Heikki Kovalainen. Ég hef þroskast sem ökumaður og persóna og verð því sterkari á svellinu en í fyrra. Með sömu ákefð og var til staðar í fyrra, þá munum við standa okkur í stykkinu," sagði Hamilton.

Martin Whitmarsh, yfirmaður hjá McLaren sagði að mikil vinna hefði verið lögð í nýja bílinn. „Hann er fljótari en 2007-bíllinn og við hefjum æfingar í vikunni. Æfum þrjá daga á Jerez brautinni á Spáni. Bíllinn á eftir að breytast mikið á næstu vikum og þá sérstaklega hvað yfirbygginguna varðar."

Sjá nánar á kappakstur.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×