Viðskipti erlent

Á uppleið í Asíu

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Japanska Nikkei-vísitalan hækkaði um 3,6 prósent í morgun eftir að trú fjárfesta á heimilistækjaframleiðandann Panasonic og fyrirtæki í stáliðnaði jókst.

Hækkuðu bréf í Panasonic um tæp níu prósent og hafði Nikkei Business Daily það á orði að allar líkur væru á að fyrirtækið færi fram úr afkomuspám. Þá hækkaði Hang Seng-vísitalan í Hong Kong um 5,28 prósent.

 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×