Viðskipti erlent

Guernseybúar fá aðeins þriðjung af innistæðum í Landsbankanum

Þeir íbúar á Guernsey sem áttu sparifé inn á reikningum í Landsbankanum þar fá að öllum líkindum aðeins þriðjung af sparifé sínu endurgreitt.

Guernsey er sjálfstæð eyja frá Bretlandi, einkum í fjármálum og því ná tryggingar þær sem breska stjórnin hefur gefið öðrum innistæðum í íslenskum bönkum í Bretlandi ekki til eyjaskeggja.

Þar að auki var Guernsey ekki með sérstakan tryggingarsjóð til að mæta tapi sem þessu. Endurskoðunarfyrirtækið Deloitte sem farið hefur yfir málefni Landsbankans á eyjunni segir að til sé fé í bankanum til að borga um 30% af 2,5 milljarða kr. innistæðum eyjaskeggja.

Á Isle of Man þar sem Kaupþing var með útibú munu þeir sem áttu innistæður þar fá borgað upp að 50.000 pundum af sínum innistæðum en yfirvöld á þeirri eyju eru með tryggingarsjóð sem borgar upphæðina.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×