Viðskipti erlent

Býst við að 20 milljónir verði atvinnulausar

MYND/Reuters

Alþjóðavinnumálastofnunin býst við því að 20 milljónir starfa hverfi á næsta ári í heiminum vegna fjármákreppunnar sem nú gengur yfir.

Byggingar- og fasteignageirinn og fjármálastarfsemi ásamt bílaiðnaðinum eru þær starfsgreinar sem talið er að verði verst úti í kreppunni en stofnunin byggir mat sitt á spá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um þróun efnahagsmála.

Um 190 milljónir manna voru atvinnulausar í lok síðasta árs samkvæmt mati Alþjóðavinnumálastofnunarinnar en reiknað er með að sú tala fari upp í 210 milljónir fyrir lok næsta árs. Stofnunin bendir þó á að þær þjóðir sem ekki byggi afkomu sína fyrst og fremst á útflutningi geti tekist betur á við kreppuna, og er þar vísað til Kína. Einungist ellefu prósent af tekjum Kínverja koma frá útflutningi.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×