Viðskipti erlent

Borga 600 milljarða kr. með íslensku reikningunum til ING

Tryggingarsjóður bankanna í Bretlandi hefur borgað 600 milljarða kr. (3 milljarða punda) svo hægt sé að yfirfæra reikninga Breta í Kaupþingi og Landsbankanum yfir til hollenska bankans ING Groep NV.

Fram kemur í frétt á Bloomberg-fréttaveitunni að í staðinn fái sjóðurinn og breska fjármálaráðuneytið réttindi við uppgjörið á Hertitable bankanum og Singer & Friedlander bankanum sem áður voru í eigu Landsbankans og Kaupþings.

Það var ING Direct, dótturfyrirtæki ING í Bretlandi sem tók yfir reikninga breskra sparifjáreigenda í þessum tveimur íslensku bönkum, þar á með Edge-reikinga Kaupþings.

ING Groep er stærsta fjármálafyrirtæki Hollands og vegna yfirtökunnar á íslensku reikningunum hefur fyrirtækið fengið 1.300 milljarða kr, lánalínu frá hollensku stjórninni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×