Unnið að björgunarpakka fyrir nauðstadda banka í Danmörku 5. október 2008 21:24
Það er víðar en á Íslandi sem unnið er að björgunarpökkum fyrir fjármálakerfið því danskir miðlar greina frá því að ríkisstjórnin þar í landi og bankarnir séu að komast að samkomulagi um sérstakan sjóð upp á 35 milljarða danskra króna, jafnvirði um 700 milljarða íslenskra króna, fyrir banka í neyð. Eftir því sem fram kemur á vef Jótlandspóstins munu bankar landsins greiða til sjóðsins í samræmi við stærð sína. Það þýðir að Danske Bank, Nordea og Jyske Bank borga stærstan hluta þess sem rennur í sjóðinn. Jótlandspósturinn segir að með þessu þurfi danskur almenningur ekki að hafa áhyggjur af innistæðum sínum í einstökum bönkum. Danskir bankamenn segja að sjóðurinn muni skapa traust á dönskum bönkum þar sem sýnt sé fram á að þeir þurfi ekki á hjálp danskra yfirvalda að halda. Upphaflega voru lífeyrissjóðirnir dönsku inni í umræðunum um aðgerðirnar en samningaviðræðum við þá var hætt um helgina og því koma bara almennir bankar, danski seðlabankinn og ríkisstjórnin að aðgerðunum. TV2 hafði eftir Steen Bocian, aðalhagfræðingi Danske Bank, að ef af samningunum yrði myndi traust á bönkunum aukast. ,,Við vitum ekki nákvæmlega hvernig samkomulagið lítur út en ef Seðlabankinn kemur inn í þetta sem bakhjarl þá er þetta góð áætlun. Bankarnir eiga almennt erfitt með að nálgast lausafé en með þessari áætlun verður hægt að nálgast slíkt aftur," segir Bocian.
Mest lesið Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Ástandið minni á 2007 Neytendur Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda Viðskipti innlent Fleiri fréttir Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira