Samkeppniseftirlitið vinnur að skýrslu um eignatengsl 27. nóvember 2008 14:19
Samkeppniseftirlitið er að vinna að skýrslu um eignatengsl í íslensku atvinnulífi og þann lærdóm sem hægt er að draga af þeim tengslum sem hafa verið fyrir hendi. Ljóst er að krosseignatengsl, hulið eignarhald og ógagnsæ hagsmunatengsl geta raskað samkeppni og unnið gegn heilbrigðum fyrirtækjarekstri. Í skýrslunni verður fjallað um þetta og bent á lausnir til úrbóta. Þetta kom fram á fréttamannafundi í dag þar sem viðskiptaráðuneytið og Samkeppniseftirlitið kynntu vinnu við opnun markaða og eflingu atvinnulífs undir yfirskriftinni „Öflug uppbygging vegna efnahagsörðugleika." Fram kom að útboð og innkaup ríkis og sveitarfélaga geta haft umtalsverð áhrif á samkeppnisumhverfi fyrirtækja. Hið sama gildir um ýmis konar þátttöku eða afskipti opinberra aðila af fyrirtækjarekstri. Samkeppniseftirlitið vinnur að athugun á þessu og stefnir að því að beina leiðbeiningum til opinberra aðila um aðgerðir sem eflt geta samkeppni og bætt hagsmuni almennings. Í framhaldi af efnahagshruni hér á landi eiga mörg fyrirtæki í erfiðleikum, atvinnuleysi eykst og heimili glíma við skuldir og skertar tekjur. Hætta er á því að fyrirtækjum fækki á mikilvægum mörkuðum vegna rekstrarörðugleika. Við þessar aðstæður er hætta á því að samkeppnishömlur og fákeppni fari vaxandi. Afar brýnt er að stjórnvöld og fyrirtæki geri allt sem í þeirra valdi stendur til þess að takmarka tjón samfélagsins af skertri samkeppni. Jafnframt er mikilvægt að læra af fenginni reynslu með það í huga að skapa forsendur fyrir heilbrigðari og samkeppnishæfari fyrirtækjarekstri. Rannsóknir í hagfræði og reynsla annarra landa sem gengið hafa í gegnum sambærilega erfiðleika sýnir að aðgerðir til þess að viðhalda og efla samkeppni stuðla að hraðari endurreisn atvinnulífsins. Með þetta að leiðarljósi er brýnt að ráðast í aðgerðir til þess að opna markaði og viðhalda eða efla samkeppni hér á landi. Með því móti er greitt fyrir atvinnuskapandi fyrirtækjarekstri. Til þess að takmarka eins og kostur er tjón af skertri samkeppni er afar mikilvægt að bankar sem nú eru í eigu ríkisins hafi hliðsjón af þeim mikilvægu langtímahagsmunum almennings og viðskiptalífsins að virk samkeppni geti þrifist, þegar ákvarðanir eru teknar um framtíð fyrirtækja. Með þetta í huga hefur Samkeppniseftirlitið beint því til bankanna að hafa tilteknar tíu meginreglur til hliðsjónar við slíkar ákvarðanir.
Mest lesið Ástandið minni á 2007 Neytendur Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Viðskipti innlent Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Neytendur Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Viðskipti innlent Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Viðskipti innlent Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Viðskipti innlent Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira