Viðskipti erlent

Sterling flugfélagið endurreist

Óli Tynes skrifar

Það var danska flugfélagið Cimber sem keypti Sterling til að endurreisa það.

Í tilkynningu um kaupin segir Jörgen Nielsen forstjóri Cimber að með þeim sjái félagið einstakt tækifæri til þess að styrkja stöðu sína sem leiðandi félag í innanlandsflugi í Danmörku.

Jafnframt geri þetta kleift að fjölga áætlunarstöðum í Evrópu.

Það sem Cimber kaupir er flugrekstrarleyfi Sterling, flugleiðir félagsins og nafn þess. Flugvélar og mannskapur er hinsvegar ekki með í kaupunum.

Sterling mun fljúga áfram undir eigin nafni og sem sjálfstætt starfandi félag. Cimber býst við að einhverjir starfsmenn félagsins sem misstu vinnuna þegar það var gjaldþrota verði endurráðnir.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×