Viðskipti erlent

Segja 60 þúsund störf tapast í fjármálageiranum í London

MYND/Reuters

Ríflega 60 þúsund störf munu tapast í fjármálageiranum í Lundúnum í ár og á næsta ári samkvæmt mati rannsóknarstofnunar þar í landi. Þetta þýðir að þau störf sem skapast hafa í geiranum á síðasta áratug þurrkast öll út.

Rannsóknarmistöð um hagfræði og viðskipti birti í dag skýrslu um málið þar sem fram kemur að störfum í fjármálageiranum í Lundúnum, sem er sá stærsti í Evrópu, muni fækka um 28 þúsund í ár og 34 þúsund á næsta ári. Þar með verði um 290 þúsund manns að störfum í geiranum á næsta ári.

Búist er við að starfsmönnum í fyrirtækjafjármögnun, afleiðuviðskiptum og fjárfestingarbankastarfsemi fækki mest í borginni. Miðstöðin segir enn fremur litlar líkur á að uppgangi í geiranum árið 2010 og að þeir sem enn verði að störfum muni fá mun lægri bónusa en áður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×