NBA í nótt: Brandon Roy með 52 stig Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. desember 2008 08:47 Roy fékk að eiga boltann að leikslokum, rétt eins og leikmenn sem skora þrennu í ensku úrvalsdeildinni. Nordic Photos / Getty Images
Tvö af sterkustu liðum Vesturdeildarinnar í NBA-körfuboltanum, San Antonio og Phoenix, töpuðu bæði sínum leikjum fyrir liðum sem hafa verið á hraðri uppleið að undanförnu. Brandon Roy átti stórleik í liði Portland. Orlando lagði San Antonio, 90-78. Dwight Howard var aftur mættur til leiks eftir að hafa misst af tveimur leikjum vegna meiðsla og stóð sig vel - skoraði fjórtán stig og tók þrettán fráköst. Jameer Nelson bætti við 24 stigum fyrir Orlando. Þetta var fyrsti leikurinn af strangri leikjatörn hjá Orlando um jólin en næst mætir liðið LA Lakers og svo New Orleans um sjálf jólin. Orlando hefur verið á miklu skriði að undanförnu og hafa unnið sjö af síðustu átta leikjum sínum. Tim Duncan var stigahæstur leikmanna San Antonio með nítján stig en liðið var 23 stigum undir í þriðja leikhluta. San Antonio náði að rétta sinn hlut í fjórða leikhluta en náði þó ekki að ógna sigri Orlando að einhverju ráði. Portland vann Phoenix, 124-119, þar sem Brandon Roy fór á kostum og skoraði 52 stig. Þar af setti hann niður þriggja stiga körfu þegar mínúta var til leiksloka og veitti Portland það forskot sem það þurfti til að innbyrða sigurinn á lokakafla leiksins. Þetta er persónulegt met hjá Roy sem sagði að þetta hafi verið hans besta frammistaða hvað sóknarleik varðar. „Það er kannski fullmikið sagt að karfan hafi bara verið of stór en sjálfstraustið var svo sannarlega til staðar. Mér fannst bara að hvert einasta skot sem ég tók myndi fara ofan í." Roy hitti úr fjórtán af 27 skotum utan af velli og nítján af 21 á vítalínunni. Steve Blake átti einnig góðan leik og skoraði 22 stig og gaf tíu stoðsendingar. Þá var LaMarcus Aldridge með sextán stig. Hjá Phoenix var Amare Stoudemire stigahæstur með 23 stig, Matt Barnes var með 22 og Shaquille O'Neal nítján. Steve Nash var með fimmtán stig og ellefu stoðsendingar. Staðan í deildinni
Mest lesið FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Körfubolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Sýður á Svisslendingum Fótbolti Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Fleiri fréttir Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark Sjá meira