Fall íslensku bankanna leikur Bayern LB grátt 21. október 2008 20:13 Angela Merkel, kanslari Þýskalands.
Þýski bankinn Bayern Landesbank varð í dag fyrsti bankinn til þess að óska eftir fjárstuðningi frá þýska ríkinu eftir að Þjóðvervjar ákváðu að koma á fót sérstökum 500 milljarða evra björgunarpakka fyrir bankastofnanir í vanda. Bayern LB óskar eftir allt að 5,4 milljörðum evra í aðstoð og samkvæmt þýskum miðlum er 1,5 milljarður af þeirri upphæð rakinn til þess hve bankinn hafi verið duglegur við að lána íslenskum bönkum. Bayern LB var bankinn sem á dögunum veitti Seðlabanka Íslands lán upp á 300 milljón evrur og á sama tíma lokaði hann á lánalínu sem áður hafði verið lofuð Glitni. Bankinn hefur einnig lánað fleiri íslenskum bönkum. Björgunaraðgerð ríkisstjórnarinnar var samþykkt á föstudaginn var en fram að þessu hafa bankar setið á sér við að biðja um aðstoð. Bayern ríður nú á vaðið og á sama tíma var greint frá því að ríkisstjórnin í Bæjaralandi ætli að leggja fram einn milljarð evra til viðbótar.
Mest lesið Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira