Viðskipti erlent

IMF spáir stöðnun í Evrópu, Ísland verður verst úti

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (IMF) spáir stöðnun í efnahagslífi Evrópu á næsta ári. Nokkur lönd munu upplifa kreppu og í þeim efnum verður Ísland verst úti að mati IMF.

IMF spáir því að hagvöxtur í Evrópu muni verða nær enginn á næsta ári eða aðeins 0,2% þegar á heildina litið.

Sjóðurinn gerir ráð fyrir neikvæðum hagvexti á Íslandi upp á 3,1% á næsta ári og kemur kreppan verst niður á Íslendingum.

Önnur lönd þar sem kreppuástand mun ríkja að mati IMF eru Spánn þar sem hagvöxtur verður neikvæður upp á 0,2%, Ítalía verður á sama báti og Spánn og Írland mun upplifa 0,6% neikvæðan hagvöxt upp á 0,6%.

Þá sleppur Bretland ekki heldur við kreppu að mati IMF en þar verður samdrátturinn upp á 0,1%.

Hinsvegar telur IMF að Danmörku muni sleppa með jákvæðan hagvöxt upp á 0,5%.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×