Talsvert fall á bandarískum hlutabréfamarkaði 21. október 2008 20:21 Frá fjárfestamarkaðnum á Wall Street í New York í Bandaríkjunum. Mynd/AP
Gengi hlutabréfa féll almennt á bandarískum hlutabréfamarkaði í dag en fjárfesta þykja greina fá merki um bata í efnahagslífinu þó sumir reikni með mýkri lendingu en búist var við. Associated Press-fréttastofan sagði í síðustu viku talsverðar sveiflur munu einkenna fjármálamarkaðinn vestanhafs og virðist það hafa verið að ganga eftir. Fréttastofan segir sameiginlegar björgunaraðgerðir seðlabanka víða um heim og fyrirhugaða innspýtingu bandaríska seðlabankans í þarlent efnahagslíf hafa létt fjárfestum lífið. Minni hreyfingar á skuldabréfamarkaði vestanhafs í dag bera þess merki að aðstæður á fjármálamörkuðum séu að batna frá því sem áður var og nálgist jafnvel jafnvægismörk. Afkomuspár tæknifyrirtækjanna Texas Instruments og Sun Microsystems urðu hins vegar til að gera vonir manna að engu. Þar koma fram nokkuð svartsýnar væntingar næstu mánuði. Þá sagði í uppgjöri Sun Microsystems að útlit sé fyrir taprekstur á fyrsta ársfjórðungi og afskriftum vegna samdráttar í efnahagslífinu. Gengi hlutabréfanna í Sun féllu um 17,4 prsent og Texas Instruments um um tæp 6,3 prósent. Fallið dró gengi hlutabréfa í Nasdaq-vísitölunni, sem samanstendur aff tæknifyrirtækjum, með sér. Nasdaq-vísitalan féll um 4,14 prósent og Dow Jones-vísitalan féll um 2,5 prósent.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira