Viðskipti erlent

Salan á Kaupþingi í Luxemborg tefst vegna lagaflækju

Lagaflækja og tæknileg vandamál gera það að verkum að salan á Kaupþingi í Luxemborg tefst. Til stóð að tilkynna nýjan eigenda að bankanum í dag.

Reuters hefur það eftir talsmanni Yves Leterme forsætisráðherra Belgíu að þrátt fyrir vandamálin sem upp hafa komið sé áhugi kaupandans enn til staðar. „Þessi lagalegu og tæknilegu vandamál sem upp hafa komið eru ekki óyfirstíganleg," segir talsmaðurinn sem reiknar með að gengið verði frá málinu í næstu viku.

Fyrir viku síðan gaf Leterme út þá yfirlýsingu að tilkynnt yrði um nýjan eigenda Kaupþings í Luxemborg í dag.

Orðrómur er í gangi að sögn Reuters að kaupandinn sé annaðhvort þýski bankinn Landesbank Nord eða Fjárfestingasjóður Líbýustjórnar.

Þá hefur komið fram að netbankinn Keytrade Bank, sem er í eigu Credit Agricole í Frakklandi hafi áhuga á að kaupa Belgíuhlutann af starfsemi Kaupþings í Luxemborg.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×