Viðskipti erlent

Rannsaka hvor forstjóri IMF hafi hyglt ástkonu sinni

MYND/AFP

Dominique Strauss-Kahn, forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sætir nú rannsókn vegna gruns um að hann hafi misbeitt valdi sínu til að gera vel við ástkonu sína, Pírosku Nagí, sem vann hjá Afríkudeild sjóðsins.

Hún hætti störfum þegar fækkað var í starfsliði sjóðsins nýlega. Grunur leikur á að Strauss-Kahn hafi tryggt henni betri starfslokasamning en aðrir hafi fengið. Strauss-Kahn segist ekki hafa misnotað stöðu sína og að hann hafi aðstoðað við rannsókn málsins.

Málið minnir margt á aðdraganda afsagnar Pauls Wolfowitz, forstjóra Alþjóðabankans, í júní í fyrra. Hann hrökklaðist úr starfi vegna þegar hann varð uppvís að því að hafa veitt unnustu sinni sem starfaði við bankann væna launa- og stöðuhækkun.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×