Viðskipti erlent

Olíutunnan stefnir í 50 dollara, OPEC dregur úr framleiðslu

Heimsmarkaðsverð á olíu stefnir nú í 50 dollara á tunnuna miðað við framvirka samninga um afhendingu á olíu í desember n.k.. Búist er við að OPEC, samtök olíuframleiðenda, muni minnka framleiðslu sína til að mæta þessum verðlækkunum.

OPEC efnir til fundar í Vín í þessari viku og er búist við að samtökin dragi úr framleiðslu sinni upp á um 2 milljónir tunna á dag. Verður það í fyrsta sinn síðan árið 2000 að OPEC dregur úr framleiðslu sinni.

Sérfræðingar hjá bæði Goldman Sachs og Merril Lynch spá því að olíuverð gæti lækkað um allt að 44% frá núverandi verði sem er rúmlega 70 dollarar á tunnuna. Spá þeirra gengur út á að heimskreppa verði staðreynd á næstu vikum.

 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×