Ljóst að framundan er mikill skortur á lánsfjármagni 20. nóvember 2008 11:19
Viðskiptaráð segir ljóst að mikill skortur sé framundan á lánsfjármagni til íslenskra fyrirtækja og heimila. Þetta er eitt af því sem fram komi í yfirlýsingu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) og íslenskra stjórnvalda í tengslum við lánveitingu IMF til Íslands. Segir ráðið að helsta áhyggjuefni yfirlýsingarinnar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins séu þær þröngu skorður sem settar eru á lausafé frá Seðlabanka Íslands að því er fram kemur í tilkynningu frá ráðinu. „Skilyrði um veðhæfni bréfa hefur verið takmörkuð og gert er ráð fyrir að aukning í lánum frá Seðlabanka til bankakerfisins verði lítil sem engin. Ljóst er að mikill skortur verður á lánsfjármagni til íslenskra fyrirtækja og heimila verði ekkert að gert," segir í tilkynningunni. „Fjárþörf hins opinbera verður mikil á næstunni og því hætt við að enn erfiðara verði fyrir fyrirtæki að nálgast lánsfé en ella. Úr þessu þarf að bæta eins fljótt og auðið er." Viðskiptaráð segir einnig að það hafi jafnan verið forgangsverkefni hjá IMF að koma alþjóðaviðskiptum og gjaldeyrismálum í horf við fyrsta tækifæri og ljóst er að Ísland er þar engin undantekning. Fleyting krónunnar er eina leiðin til að hægt sé að hefja gjaldeyrisviðskipti með eðlilegum hætti og því skref í rétta átt. Það er mikilvægt að stjórnvöld leggi ekki upp með að handstýra genginu með of kröftugum hætti og ganga þannig of hratt á gjaldeyrisvarasjóð Seðlabankans. Reynslan hefur sýnt að flestir Seðlabankar mega sín lítils í baráttu við erlenda fjármagnsstrauma. Lykilatriði í þessu samhengi er að stjórnvöld og atvinnulíf komi eftir fremsta megni í veg fyrir að gengisveiking krónunnar leiði út í verðlag. Með þeim hætti má tryggja að leiðrétting raungengis fari í sem mestum mæli í gegnum styrkingu krónunnar. Að sama skapi er mikilvægt að útflytjendur taki afnámi gjaldeyrishafta fagnandi og hiki ekki við að flytja gjaldeyri sinn heim til Íslands.
Mest lesið Ástandið minni á 2007 Neytendur Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Viðskipti innlent Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Neytendur Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Viðskipti innlent Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Viðskipti innlent Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Viðskipti innlent Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira