SÍ kallar eftir gjaldeyri og varar við utanmarkaðsviðskiptum 31. október 2008 09:07
Enn gengur hvorki né rekur hjá Seðlabanka Íslands að koma á gjaldeyrisviðskiptum við erlenda banka. Af þeim sökum hefur SÍ gripið til þess ráðs að biðla til þeirra sem eiga gjaldeyri að koma með hann á tilboðsmarkað bankans. Jafnframt varar bankinn við utanmarkaðsviðskiptum með gjaldeyri. „Ætla má að unnt sé að auka veltu og styrkja verðmyndun á tilboðsmarkaðnum. Í því skyni eru útflytjendur og aðrir sem eiga gjaldeyri eindregið hvattir til að bjóða hann til sölu á þeim vettvangi. Þeir geta snúið sér til fjármálafyrirtækja sem eiga viðskipti við Seðlabankann og falið þeim að koma tilboðum sínum á framfæri," segir í tilkynningu um málið á heimasíðu bankans. Jafnframt segir að verðmyndun utan tilboðsmarkaðar er til þess fallin að seinka heilbrigðum viðskiptaháttum með gjaldeyri og skaða tilraunir til að koma þeim í eðlilegt horf. Auk þess eru utanmarkaðsviðskipti ógagnsæ og áhættusöm. Seðlabankinn kom upp svonefndum tilboðsmarkaði fyrir gjaldeyri eftir að bankarnir hrundu og hefur sett 25 milljónir evra á hann daglega. Jafnframt hefur bankinn opnað safnreikninga fyrir útflytjendur en það hefur það hefur borið takmarkaðan árangur. Ástæðan er sú að erlendir bankar treysta einfaldlega ekki Seðlabankanum eftir að bankakerfið íslenska hrundi til grunna.
Mest lesið Ástandið minni á 2007 Neytendur Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur Fleiri fréttir Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira