Viðskipti erlent

Sterling dæmt fyrir að reka ranga flugmenn

Östre Landsret í Kaupmannahöfn hefur dæmt Sterling flugfélagið til að greiða um 30 milljónir kr. , auk vaxta, vegna ólögmæts brottreksturs 13 flugmanna í febrúar 2006.

Uppsagnirnar áttu sér stað er skopteikningarmálið og fuglaflensa gerðu flugrekstur mjög erfiðan í Danmörku. Var 5% flugmanna Sterling sagt upp.

Árinu áður hafði Sterling sameinast Mærsk flugfélaginu og komu flugmennirnir 13 frá Mærsk. Uppsagnirnar voru gerðar á grundvelli þess að stysti starfsaldur réð hverjir voru reknir.

Þótt Mærsk-flugmennirnir hafi verið þeir sem áttu styttstan starfsaldur hjá Sterling tók Östre Landsret til greina að almennur starfsaldur, óháð því hvaðan flugmennirnir komu, ætti að ráða í þessu tilviki.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×