Viðskipti erlent

New York Times tekur risalán

Óli Tynes skrifar

Bandaríska dagblaðið New York Times ætlar að taka að láni allt að 225 milljónum dollara til þess að létta lausafjárstöðu sína.

Það eru um 25 milljarðar íslenskra króna. NYT setur að veði fimmtíu og tveggja hæða höfuðstöðvar sínar á Eight Avenue.

Lokið var við að reisa skýjaklúfinn á síðasta ári. NYT á 58 prósent í húsinu og á því hvíla engin veð. Sumir hluthafar hafa kvartað undan því að fyrirtækið sé með of mikið af fé sínu bundið í fasteigninni.

NYT er með tvær lánalínur samtals upp á 800 milljónir dollara. Skuldirnar í dag eru um helmingurinn af þeirri upphæð. Önnur lánalínan rennur út í maí og miðað við stöðuna á mörkuðum og minnkandi tekjum yrði erfitt fyrir blaðið að finna nýja línu í staðinn.

Það hefur verið talað um það mánuðum saman að besta leiðing fyrir NYT sé að selja fasteignir eða taka lán út á þær.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×