Viðskipti erlent

Fjármálaeftirlitið rannsakar símtöl Stoltenbergs til vinar

Jens Stoltenberg.
Jens Stoltenberg. MYND/Hari

Fjármálaeftirlitið í Noregi rannsakar nú hvort Jens Stoltenberg, forsætisráðherra landsins, hafi látið bankastjóra þar í landi fá innherjaupplýsingar áður en tilkynnt var um aðgerðir ríkisstjórnarinnar til þess að verja banka landsins.

Ríkisstjórnin kynnti aðgerðirnar á sunnudag en vikuna þar á undan átti Rune Bjerke, bankastjóri Dnb Nor, samtöl við Stoltenberg í síma ásamt því að skiptast á SMS-skilaboðum við hann.

Fjármálaeftirlitið norska kannar nú hvort bankinn hafi búið yfir innherjaupplýsingu þegar hann seldi ríkisskuldabréf fyrir 2,3 milljarða norskra króna, hátt í 40 milljarða króna, á fimmtudag og föstudag í síðustu viku.

Talsmaður forsætisráðherrans segir ekkert hafa farið þeirra í millum um aðgerðir stjórnvalda heldur séu Bjerke og Stoltenberg einungis góðir vinir.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×