Kaupþing lánaði 60 milljarða króna í snekkjur og einkaþotur 24. nóvember 2008 08:25
Komið hefur í ljós að Singer & Friedlander, dótturbanki Kaupþings í Bretlandi, lánaði 310 miljónir punda eða rúmlega 60 milljarða króna til kaupa á snekkjum og einkaþotum fyrir efnaða Londonbúa. Samkvæmt frétt um málið á Bloomberg-fréttaveitunni var bankinn með „einkalánabók“ upp á 1,3 milljarða punda og taldi hún 400 viðskiptavini. Af þessari upphæð fóru 219 milljónir punda í að fjármagna snekkjukaup og 90 milljónir punda í að fjármagna einkaþotur. Auk þess kemur fram að 425 milljónir punda voru lánuð til fasteignakaupa. Þessar upplýsingar koma fram í yfirliti frá endurskoðunarfyrirtækinu Ernst & Young sem hefur skráð það hjá Companies House í Bretlandi eða fyrirtækjaskráningu landsins. „Við erum að fara yfir lánabókina línu fyrir línu," segir í yfirliti Ernst & Young. „Hvernig lántakandinn standi sig, gæði trygginga hans fyrir láninu og möguleika á sölu." Þá kemur fram að fyrirtækjalánabók S&F var nokkuð minni að vöxtum eða upp á 824 milljónir punda. Þar af voru 16 milljónir punda lánuð til að fjármagna leikmannakaup í ensku úrvalsdeildinni.
Mest lesið Munu opnu vinnurýmin hverfa eins og hornskrifstofurnar? Atvinnulíf Eins og James Bond: Huggulegur, ferðast, leysir vandamál og drekkur martini Atvinnulíf John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Viðskipti innlent Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Viðskipti erlent Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Viðskipti innlent Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Viðskipti innlent Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Viðskipti innlent Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Viðskipti innlent Að fólk skilji garðhúsgagnabúslóðirnar eftir heima Neytendur Fleiri fréttir Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Olíuverð lækkar eftir fregnir af samkomulagi Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Heimsins fyrsti billjónamæringur Sögulegri skráningu SpaceX lokið Hefja rannsókn á Ryanair Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira