Viðskipti erlent

Baugur mögulega á leið í greiðslustöðvun

Gunnar Sigurðsson forstjóri Baugs.
Gunnar Sigurðsson forstjóri Baugs.

Baugur hefur fengið til liðs við sig fyrirtækið BDO Stoy Hayward til að hjálpa til við endurskipulagningu á félaginu. Frá þessu er greint á vef breska blaðsins Telegraph. Þar segir að einn möguleikinn sem verið sé að kanna sé að óska eftir greiðslustöðvun. Þar segir að slík aðgerð myndi ekki hafa nein áhrif á fyrirtæki í eigu Baugs til skamms tíma.

„Við erum að skoða ýmsa möguleika," er haft eftir talsmanni Baugs, sem segir að málið sé skammt á veg komið. Telegraph hefur jafnframt eftir ónafngreindum heimildum að með því að ef greiðslustöðvun yrði samþykkt væri auðveldara að bjarga fyrirtækjum í eigu Baugs.

Þetta kemur í kjölfar orða Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, stjórnarformanns Baugs, um helgina þar sem hann varaði við því að ef ekki yrði gengið til samninga við Sir Philip Green um skuldir Baugs við íslensku bankana og íslensk stjórnvöld þá gátu fjárfestingar félagsins fallið ein af annarri.


















Fleiri fréttir

Sjá meira


×