Viðskipti erlent

Bitist um Storebrand-hlut Kaupþings

Norski viðskiptamiðillinn E24.no greinir frá því í dag að breski bankinn Royal Bank of Scotland hafi í gegnum dótturfyrirtæki sitt ABN Amro þvingað í gegn sölu á tæplega tíu prósenta hlut í norska tryggingafélaginu Storebrand.

Sá hlutur mun hafa verið í eigu Kaupþings í Noregi en norska ríkið tók yfir bankann í gær. Með þessu vildu norsk stjórnvöld tryggja innistæður norskra viðskiptavina Kaupþings en ljóst er af frétt E24 að baráttan um eignir Kaupþings er mikil.

E24 segir að tíu prósenta hluturinn hafi farið á 988 milljónir norskra króna, jafnvirði um 17 milljarða íslenskra króna. Kaupþing staðfestir í tilkynningu að hluturinn hafi verið í eigu bankans og hann eigi tíu prósent í Storebrand eftir viðskiptin. Haft er eftir skipuðum stjórnanda Kaupþings í Noregi, Bjarne Borgersen, að honum sé ekki kunnugt um sölu á Storebrand-hlutnum en rannsókn á málinu standi yfir.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×