Írland fyrsta evrulandið sem verður kreppunni að bráð 26. september 2008 10:50
Írland er fyrsta evrulandið sem verður kreppunni að bráð en landsframleiðsla þess dróst saman tvo ársfjórðunga í röð. Talið er að fleiri Evrópulönd muni fylgja í kjölfarið þegar tölur birtast um landsframleiðslu þeirra á þriðja ársfjórðungi. Greining Glitnis fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að landsframleiðsla dróst saman á Írlandi á öðrum ársfjórðungi, annan fjórðunginn í röð, og er landið þar með fyrst evrulanda til að sigla inn í samdráttarskeið samkvæmt hefðbundinni skilgreiningu í kjölfar alþjóðlegu fjármálafjárkrísunnar og samdráttar í byggingariðnaði og einkaneyslu í landinu. Verg landsframleiðsla á öðrum fjórðungi ársins dróst saman um 0,5% frá fyrsta fjórðungi þessa árs þegar samdrátturinn nam 0,3%, og um 0,8% frá öðrum ársfjórðungi í fyrra. Mikill uppgangur hefur átt sér stað í írsku hagkerfi frá því síðla á tíunda áratug síðustu aldar þegar erlend fyrirtæki flykktust til landsins til að njóta góðs af hagstæðri skattalöggjöf Íra. Undanfarin tíu ár hefur hagvöxtur á Írlandi aukist um 7% á ári sem er þrefalt meira en meðalhagavöxtur á evrusæðinu á sama tímabili Fram kemur í Morgunkorninu að greiningaraðilar telja að fleiri lönd muni fylgja Írlandi inn í samdráttarskeið eftir birtingu talna um landsframleiðslu á þriðja ársfjórðungi þessa árs og eftir því sem óróinn á fjármálamörkuðum heims fer að hafa sterkari áhrif. Hafa Ítalía og Þýskaland verið nefnd sem líkleg til að vera næst í röðinni.
Mest lesið Uppsagnir fram undan og óttinn vex Atvinnulíf Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál Viðskipti innlent Brynja til Fastus frá Samkaupum Viðskipti innlent „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Viðskipti innlent Feðgarnir nú aftur einu hluthafarnir í Eyri Invest Viðskipti innlent Eins og James Bond: Huggulegur, ferðast, leysir vandamál og drekkur martini Atvinnulíf Þurrsteypa styttir biðtíma og dregur úr raka í byggingum Samstarf Munu opnu vinnurýmin hverfa eins og hornskrifstofurnar? Atvinnulíf Gætum orðið fyrsta landið í heiminum til að snúa þróun offitu við Samstarf Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Olíuverð lækkar eftir fregnir af samkomulagi Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Heimsins fyrsti billjónamæringur Sögulegri skráningu SpaceX lokið Hefja rannsókn á Ryanair Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira