Leikjavísir

CCP kann heldur betur að hugsa um fólkið sitt

CCP þótti hæfa þeim anda sem ríkir innan fyrirtækisins að fara í exótíska ferð itl Morocco.

„Starfsmannafélagið fór þessa ferð eftir að hafa safnað fyrir henni í um tvö ár," svarar Hólmfríður Eygló A. Gunnarsdóttir starfsmaður hjá CCP þegar Vísir spyr hana út í ferð starfsmanna fyrirtækisins til Marocco í Afríku fyrr á árinu.

„Ákveðið var að fara til Marrakech í Morocco, að þessu sinni þar sem það þótti hæfa þeim anda sem ríkir innan fyrirtækisins að fara í exótíska ferð en áður hefur verið farið til London, Barcelona, Búdapest og Madrid."

„Heildarfjöldinn í ferðinni var rúmlega 330 manns og þeim flogið inn frá þremur heimsálfum. Ferðin lagðist mjög vel í alla enda ekki á hverjum degi sem starfsmönnum gefst tækifæri á að skoða eins framandi land og Marokkó."



Fyrirtækið ræður eingöngu snillinga.

„Í dag starfa 347 manns hjá CCP á Íslandi, í Bandaríkjunum og í Kína. Fyrirtækið áætlar að heildarfjöldi starfsmanna verði yfir 400 á þessu ári og hátt í 500 í lok árs 2009," segir Hólmfríður aðspurð um starfsmannafjölda og stefnu.

„Ýmis fríðindi eru fyrir starfsmenn CCP á Íslandi og má þar nefna einstaka vinnuaðstöðu, mötuneyti á heimsmælikvarða, nudd á vinnustað, fyrirtækjalækni með fasta viðverutíma á vinnustað, heilsueflingu, sveigjanlegan vinnutíma."

„Boðið er upp á fatahreinsun og klippingu á staðnum auk þess sem sérstök félagsmiðstöð era ð byggjast upp, þar sem starfsmenn geta spilað snóker, borðtennis, dart, Playstation eða þythokkí, þegar þeir eru ekki að vinna í tölvuleikjagerð á heimsmælikvarða."

Himneskt ekki satt?

„Óski starfsmenn eftir því eru bílar þeirra sóttir á vinnustaðinn og þeim keyrt á nærliggjandi verkstæði þar sem skipt er um olíu og dekk á meðan starfsmaðurinn sinnir vinnunni sinni."

„Allir starfsmenn fá auk þess kaupréttarsamninga, sem þeir geta svo nýtt sér við kaup á hlutabréfum í fyrirtækinu."

"Ég hef verið hérna í tæp 5 ár og mér dettur ekki í hug að fara" segir Hólmfríður.

„Starfsmannastefna fyrirtækisins er einföld. Fyrirtækið ræður snillinga."

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×