Húmorslausar trukkalessur Þórhildur Elín Elínardóttir skrifar 5. mars 2008 06:00 Nýlega gengnir héraðsdómar fyrir ofbeldisverk gegn konum verða eftir hálfa öld notaðir í skólabókum um hið rammskakka siðferði aldamótasamfélagsins sem við lifum í. Að karlar fái grútlinar áminningar í formi stuttra skilorðsdóma fyrir að ganga í skrokk á konum verður rætt í þátíð eins og hvurt annað bull sem viðgekkst bara í forneskjunni. Flokkað með því þegar konur voru án kosningaréttar og þóttu bestar rjóðar og undirleitar. Einhverjir munu þó trúlega rifja upp gömlu góðu tímana með dálitlum söknuði, þegar konur voru alvöru konur sem skiljanlega þurfti annað slagið að kenna eina lexíu eða tvær. Það verða til hálfvitar á öllum tímum. Því þrátt fyrir allt miðar okkur dálítið áleiðis og um það vitna nýsamþykkt jafnréttislög. Og alveg eins og langhlauparinn sem trúir því að marklínan færist nær og muni í alvörunni birtast á endanum er einmitt mikilvægt að hafa augun á markmiðinu. Beggja vegna vegarins er mýri en því sjaldnar sem okkur skrikar fótur, því rösklegar komumst við. Þrátt fyrir úrtölumenn sem óttast það eitt að missa völd og úrtölukonur sem þykjast ekki kannast við slagsíðuna. Því hver vill láta stimpla sig sem femínista? Þessar húmorslausu trukkalessur, sífellt með grútleiðinlegar rannsóknarniðurstöður og pólitískan rétttrúnað á vör. Sem sjá óvin í öllum drengjum eldri en tólf ára, þannig eru femínistar. Öfgahópur sem svífst einskis og kemur beinlínis óorði á jafnréttisbaráttuna. Það sem þessar kellingar þyrftu einkum eru náin kynni við alvöru karlmenn sem kunna til verka og rétta hjá þeim kúrsinn. En fáir sverja þó núorðið af sér jafnréttisbaráttuna, henni vilja flestir gangast við... þannig lagað. Hér á landi er ástandið nefnilega bara alveg ágætt, sjáið bara hvernig farið er með konur í öðrum löndum. Á meðan meybarnamorð og umskurður á stúlkubörnum viðgangast annars staðar er hlægilegt að þessar feminínstakerlingar séu að væla eitthvað um heimilisofbeldi, kjaramál og stjórnarsetur. Eins og eitt útiloki annað. Því skoðanaarfurinn sleppir ekki takinu sjálfkrafa hversu afdráttarlaus og kúgandi sem hann er. Okkar verkefni er einfaldlega að halda áfram. Þetta kemur. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Þórhildur Elín Elínardóttir Mest lesið Það sem voru „bjartari tímar“ í fyrra eru nú bölvaðar skattahækkanir Þórður Snær Júlíusson Skoðun Ólaunuð vinna kvenna Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir Skoðun Lágpunktur umræðunnar Jón Pétur Zimsen Skoðun Íslenska er leiðinleg Nói Pétur Á Guðnason Skoðun Ólögmæt mismunun eftir búsetu öryrkja fest í lög á Íslandi Jón Frímann Jónsson Skoðun Ísland er á réttri leið Dagbjört Hákonardóttir Skoðun Hverjum voru ráðherrann og RÚV að refsa? Júlíus Valsson Skoðun Stjórnvöld beita sleggjunni og ferðaþjónustan á að liggja undir höggum Þórir Garðarsson Skoðun Mannréttindaglufur og samgönguglufur Gunnar Ármannsson Skoðun Almenningur og breiðu bök ríkisstjórnarinnar Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun