Viðskipti erlent

Gjaldþrot yfirvofandi hjá sjötta hverju fyrirtæki í Danmörku

Gjaldþrot er nú yfirvofandi hjá sjötta hverju fyrirtæki í Danmörku. Verst er ástandið á Kaupmannahafnarsvæðinu og á Sjálandi.

Þetta kemur fram í nýrri rannsókn á vegum lána- og greinendafélagsins Experian. Samkvæmt rannsókninni er fjárhagur 17% fyrirtækja í Danmörku nú þannig að gjaldþrot blasir við að öllu óbreyttu.

Sem fyrr segir er það Kaupmannahafnarsvæðið sem kemur hvað verst út. Nefna má að hlutfall fyrirtækja á barmi gjaldþrots í Frederkisberg er 21,7%, í Tårnby er það einnig 21,7%, í miðborg Kaupmannahafnar er hlutfallið 21,6% og út í Dragör er það 21,5%.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×