Reiður AC/DC-aðdáandi vill stofna félag vegna krafna í þrotabú Sterling 2. nóvember 2008 22:55
Danskur karlmaður, sem sem átti bókað far með danska flugfélaginu Sterling, íhugar að stofna félag til þess að halda utan um kröfur þess mikla fjölda viðskiptavina sem töpuðu flugmiðum á gjaldþrotinu. Fram kemur á fréttavef Jótlandspóstsins að mörg þúsund manns hafi tapað fé sínu þegar Sterling varð gjaldþrota í síðustu viku. Þessir viðskiptavinir geta gert kröfu í þrotabúið en því er fjöldi manns óvanur. Þess vegna datt Lars Gosvig í hug að stofna félag sem héldi utan um kröfu viðskiptavina Sterling. Hann er sjálfur hundfúll út í forsvarsmenn Sterling því fjórum dögum fyrir gjaldþrotið pantaði hann flugmiða til Lundúna fyrir sig og son sinn í apríl en þá ætluðu þeir á tónleika með rokksveitinni AC/DC. Gosvig segist hafa tapað 2.700 dönskum krónum, vel á fimmta tug þúsunda íslenskra króna. Hann vilji gera kröfu í búið og sé tilbúinn að fara fyrir félagi sem myndi gera kröfu fyrir hönd fjölmargra viðskiptavina Sterling sem ekki séu slíku vanir. Fulltrúi hjá Neytendaráði Danmerkur hvetur fólk til að leggja fram kröfu á hendur Sterling vegna tapaðra fjármuna. Fólki eigi að minnsta kosti rétt á þeim hluta miðans sem samanstandi af sköttum ög gjöldum.
Mest lesið „Gerðu grín að okkur og kölluðu „litlu strákana með litina““ Atvinnulíf Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Samstarf Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Þegar allt er að fara fjandans til… Atvinnulíf Fleiri fréttir Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Sjá meira