„Gamla kreppan“ 79 ára í dag Atli Steinn Guðmundsson skrifar 24. október 2008 11:46 Fólk safnast saman á Wall Street í lok október 1929 þegar tíðindin af hruninu fara sem eldur í sinu. MYND/AP
Í dag eru 79 ár frá „svarta fimmtudeginum" 24. október 1929 sem margir telja að hafi markað upphaf heimskreppu fjórða áratugar 20. aldarinnar. Aðrir miða upphaf kreppunnar við „svarta þriðjudaginn" sem var 29. október og hafa báðir hópar nokkuð til síns máls. Kreppan sem hófst haustið 1929 átti sér þó í raun engan einn upphafsdag. Í raun mætti með nokkrum rökum eins halda því fram að heimskreppan hafi hafist mun fyrr haustið 1929 en 3. september hafði Dow Jones-hlutabréfavísitalan náð þeim hæðum sem síðan áttu ekki eftir að sjást lengi - 381,17 stigum - og hafði hún þá fimmfaldast á síðastliðnum fimm árum en þensluár þriðja áratugarins, „the roaring twenties", áttu sér engin fordæmi. Sprengingar urðu í kvikmyndatækni, útvarpi, efnafræði og síðast en ekki síst framleiðslu bifreiða sem hinn almenni launaþræll gat nú í fyrsta sinn eignast. Henry Ford seldi fimmtán milljónasta T-Fordinn í Bandaríkjunum árið 1927 en til samanburðar voru 1,9 milljónir bifreiða skráðar í öllu Kanada árið 1929. Það sem fer upp... Eins og útrásinni ævintýralegu hlaut að ljúka hlaut þensla þriðja áratugarins einnig að enda með hvelli. Lækkunin sem hófst 3. september leiddi að lokum til gríðarlegs verðhruns 24. október þegar óttaslegnir fjárfestar seldu 12,9 milljónir hlutabréfa á einum degi. Klukkan eitt eftir hádegi föstudaginn 25. október funduðu bankastjórar stærstu Wall Street-bankanna um ástandið. Þann fund sátu meðal annars Thomas W. Lamont frá Morgan, Albert Wiggin frá Chase National Bank og Charles E. Mitchell frá National City Bank. Þeir kusu Richard Whitney, aðstoðarforstjóra kauphallarinnar, sem aðgerðastjóra sinn. Aðgerðir hans fólust í að bjóða í stóran hluta bréfa í US Steel og öðrum iðnfyrirtækjum á yfirverði sem nægði til að stöðva skriðuna í bili. Björgun Whitneys reyndist skammgóður vermir. Helgarblöðin birtu ítarlegar frásagnir af atburðarásinni á Wall Street og mánudaginn 28. október fór af stað hlutabréfasöluskriða sem lækkaði Dow Jones-vísitöluna um 13 prósentustig en slík lækkun hafði ekki áður sést einn og sama daginn. Salan náði svo hámarki „svarta þriðjudaginn" 29. október þegar 16 milljónir hlutabréfa seldust og markaðurinn hrundi. Heimskreppa hófst. Tíföld fjárlög Bandaríkjanna Tólf ár liðu þar til Dow Jones-vísitalan hafði á ný náð 381 stigi en hún fór lægst niður í 41 stig árið 1931. Af 25 þúsund viðskiptabönkum í Bandaríkjunum fóru 11 þúsund á hausinn, atvinnulausum fjölgaði úr tæplega tveimur milljónum árið 1929 í 12,8 milljónir árið 1933. Erfitt er að nefna dollaratölur til að gefa mynd af því sem tapaðist á hlutabréfamarkaðnum á innan við viku í lok október 1929. Tapið nam 30 milljörðum dollara þessa daga, upphæð sem ef til vill fáum vex í augum haustið 2008. Til að setja þetta í samhengi má geta þess að á innan við viku töpuðust tíföld fjárlög bandaríska ríkisins og mun hærri upphæð en öll fyrri heimsstyrjöldin kostaði Bandaríkin.
Mest lesið Fyrirtæki Elds með málmana sem Trump girnist á Grænlandi Viðskipti innlent Í hóp fimm milljarðamæringa úr tónlistarsenunni Viðskipti erlent Sleppir ekki pítsunum þrátt fyrir eitt óhappatilvik Neytendur Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent Skattakóngurinn flytur úr landi Viðskipti innlent Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Sýn tilnefnt sem Besta íslenska vörumerkið 2025 Samstarf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Sigla til loðnuleitar í fyrstu viku janúar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Í hóp fimm milljarðamæringa úr tónlistarsenunni Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Ekkert verður úr TikTok-banni með nýjum samningi Hæstu stýrivextir í þrjátíu ár Höfnuðu yfirtökutilboði Paramount Messenger-forritið heyrir sögunni til Lofar að koma böndum á CNN Reyna fjandsamlega yfirtöku á Warner Bros. Kaup Netflix á hluta Warner Bros. gætu reynst „vandamál“ ESB sektar samfélagsmiðil Musk um milljarða Google birtir lista yfir vinsælustu leitarorðin Netflix í viðræðum um kaup á HBO frá Warner Bros Hringir viðvörunarbjöllum vegna samkeppni frá Google „Brunaútsala“ á hlutabréfum eftir eldsvoðann í Hong Kong Fjögurra billjóna hagnaður léttir fyrir fjárfesta Stefna Jóni Þorgrími vegna Rauða heftarans Segir engan óhultan ef gervigreindarbólan springur Trump fellir niður tolla á tugi matvæla Paramount, Comcast og Netflix vilja kaupa Warner Kári og Hannes stofna fyrirtæki: „Erum aðallega bara að velta fyrir okkur heiminum“ PlayStation 5 slær Xbox 360 við Reyna að halda sjaldgæfum málmum frá hernum Jensens Bøfhus lokað Samþykktu stærðarinnar launapakka Musks Græða á tá og fingri á svikum og prettum Fresta reynsluflugi rafmagnsflugvélar Segist engin deili kunna á rafmyntajöfri sem hann náðaði Sjá meira
Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent
Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent