Viðar Þorkelsson nýr forstjóri Landic 3. nóvember 2008 12:19
Viðar Þorkelsson hefur verið ráðinn forstjóri Landic Property í stað Skarphéðins Berg Steinarssonar og tekur strax til starfa. Viðar Þorkelsson var framkvæmdastjóri fjármálasviðs Stoða (áður FL Group) frá febrúar 2008. Á árunum 2006 til 2008 gegndi Viðar stöðu framkvæmdastjóra fjármála- og tæknisviðs 365 hf. Viðar starfaði á árunum 2000-2005 sem framkvæmdastjóri fjármála- og rekstarsviðs og síðar sem aðstoðarforstjóri Vodafone og fyrirrennara þess félags. Á árunum 1988-2000 starfaði Viðar hjá Landsbanka Íslands, m.a. sem svæðisstjóri og útibússtjóri. Viðar lauk prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1988 og MBA gráðu frá Peter F. Drucker Management Center í Bandaríkjunum 1993. Kristín Jóhannesdóttir, stjórnarformaður Landic Property segir í tilkynningu um málið: "Ég færi Skarphéðni Berg Steinarssyni bestu þakkir fyrir árangursríkt og gott samstarf. Undir stjórn Skarphéðins jók Landic Property umsvif sín verulega með kaupum og sameiningu fasteignafélaga á Norðurlöndum. Stjórn Landic Property væntir mikils af Viðari Þorkelssyni og telur að reynsla hans og hæfni muni nýtast félaginu vel við núverandi aðstæður." Viðar Þorkelsson, nýr forstjóri Landic Property segir að það sé ánægjulegt að fá tækifæri að taka við stjórn Landic Property, sem er stórt félag með vandað eignasafn og öflugan hóp starfsmanna. "Þetta er í senn spennandi og krefjandi verkefni." segir hann. Skarphéðinn Berg Steinarsson, fráfarandi forstjóri Landic Property segir að samstarf hans við stjórn og hluthafa hefur verið einstaklega gott og enginn ágreiningur verið um þá stefnu sem unnið hefur verið eftir. "Ég vil einnig þakka starfsfólki Landic Property fyrir mjög góð, ánægjuleg og árangursrík samskipti." segir hann.
Mest lesið Ástandið minni á 2007 Neytendur Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Samstarf Fleiri fréttir Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira