Seðlabankinn afnam bindiskyldu erlendra útibúa í mars 19. nóvember 2008 14:33
Stjórn Seðlabanka Íslands tók þá ákvörðun 25. mars að gera slæmt ástand helmingi verra með því að afnema bindiskyldu erlendra útibúa íslensku bankanna. Þetta er athyglisvert í ljósi orða Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra á fundi Viðskiptaráðs í gær um að á fundi mánuði fyrr, eða í febrúar í London, hafi forsvarsmönnum bankans orðið ljóst að ástandið var orðið svo slæmt að þeim hafi beinlínis verið brugðið. Á vefsíðu Seðlabankans þann 25. mars segir: „Í nýjum reglum um bindiskyldu er gert ráð fyrir því að skuldbindingar erlendra útibúa íslenskra banka myndi ekki grunn bindingar. Breytingin tekur gildi þegar reglulegri upplýsingasöfnun um efnahagsliði erlendra útibúa íslenskra fjármálafyrirtækja hefur verið komið á. Tilgangur breytingarinnar er að samræma reglurnar þeim sem gilda hjá Evrópska Seðlabankanum svo sem verða má. Þótt tölur liggi ekki fyrir má ætla að breytingin létti talsvert á bindiskyldu þeirra banka sem starfrækja útibú erlendis." Segja má að á grundvelli þessarar breytingar á bindiskyldunni hafi Landsbankinn getað stóraukið við Icesave-reikninga sína og stofnað til þeirra í fleiri löndum en Bretlandi. Nefna má að Icesave í Hollandi var komið á í maí eftir að fyrrgreind breyting tók gildi. Með bindiskyldu er átt við að seðlabankar geta skyldað viðskiptabanka til að leggja ákveðið hlutfall af innlánum inn á reikning í seðlabankanum, þar með geta viðskiptabankarnir ekki lánað það fé út.
Mest lesið Telur um dulda launahækkun skrifstofufólks að ræða Viðskipti innlent Rifjar Ímon-málið upp 17 árum seinna: „Hreint og beint ofbeldi af hálfu opinberra starfsmanna“ Viðskipti innlent Segja falda launauppbót hjá níu af hverjum tíu stofnunum ríkisins Viðskipti innlent Innbú Play til sölu: Gæti aflað búinu fjórtán milljóna króna Viðskipti innlent Nú er ekki hægt að afskrá flugvélar nema að greiða gjöldin Viðskipti innlent Ísland verði leiðandi í þróun varna og viðskipta á Norðurslóðum Viðskipti innlent Eva og Guðrún nýir forstöðumenn hjá Icelandair Viðskipti innlent „Það er kennitöluflakk í skilgreiningu sinni“ Viðskipti innlent Bein útsending: Er gervigreindin alvöru tækifæri fyrir Ísland? Viðskipti innlent Óvæntur atvinnumissir: Óttinn verstur en mörg góð ráð Atvinnulíf Fleiri fréttir Rúmlega þriðjungs samdráttur í olíuvinnslu í Rússlandi Burger King opnar fyrsta staðinn á Grænlandi Eigandinn hættir sem forstjóri Trump setur tolla á lyf, vörubíla og húsgögn Murdoch-feðgar verði meðal kaupenda TikTok Ben kveður Jerry Nálgast samkomulag um TikTok Breytingar hjá Microsoft koma fyrirtækinu hjá sektum Ellison klórar í hælana á Musk Danski lyfjarisinn að baki Ozempic segir upp þúsundum manna Útvaldi sonurinn tryggir sér stjórn Murdoch-veldisins Vilja að Musk fái allt að 122 billjónir á næsta áratug Vara við „Lafufu“ Framkvæmdastjóri Nestlé látinn fara í kjölfar ástarsambands Sjá meira
Rifjar Ímon-málið upp 17 árum seinna: „Hreint og beint ofbeldi af hálfu opinberra starfsmanna“ Viðskipti innlent
Rifjar Ímon-málið upp 17 árum seinna: „Hreint og beint ofbeldi af hálfu opinberra starfsmanna“ Viðskipti innlent