Gjaldþrot Stones hefur lítil áhrif á Landic 10. september 2008 17:06 Páll Benediktsson. „
Okkar krafa var á meðal þeirra þriggja sem voru lagðar fram í réttinum í dag og urðu til þess að þeir voru úrskurðaðir gjaldþrota," segir Páll Benediktsson, hjá Landic Property en Stones invest var úrskurðað gjaldþrota í dag. Landic Property og Stones invest elduðu grátt silfur saman í kjölfar þess að kaup Stones á Keops development gengu ekki eftir. „Við vorum með tiltölulega litla kröfu út af virðisaukaskatti sem við vitum að þeir hafa ekki innt af hendi. Svo teljum við okkur eiga meira inni í þessu félagi, rúmar 140 milljónir danskar, þannig að við kætumst svo sem ekkert yfir þessu. En nú er auðvitað komið í ljós hverjir það voru sem hafa svikist undan merkjum í þessum samningum af því þeir gátu ekki staðið við skuldbindingar sínar," segir Páll. Páll segir að hjá Landic hafi menn fundið það í öllu ferlinu, frá því Stones riftu samningnum á kaupunum á Keops development að þeir réðu ekkert við sín mál. „Við höfum vitað lengi að það stefndi í þrot hjá þeim," segir Páll. Hann bætir við að hjá Landic hafi menn velt því fyrir sér hvernig ætti að bregðast við vanefndum Stones á sínum tíma. „Við ákváðum að lokum að taka Keops aftur til okkar. Það sýnir sig núna að var mjög hyggileg ákvörðun því þar eru mikil verðmæti inni sem hefðu annars farið núna inn í þennan gjaldþrotaskiptapakka." Páll segir að gjaldþrot Stones komi ekki til með að hafa mikil áhrif á Landic Property. „Þetta er ekkert alvarlegt áfall fyrir okkur, og við gerum ráð fyrir að fá okkar fé til baka úr þessum þrotaskiptum enda eru þarna, hvað sem hver segir, miklar eignir inni. Þetta er fyrst og fremst leiðindamál sem veldur því að við verðum með eitthvað fé bundið þarna inni í einhvern tíma sem við hefðum getað náð út í samningum við þá strax, en fór sem fór," segir Páll Benediktsson.
Mest lesið Hækka stýrivexti Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Viðskipti erlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira