Þjóðnýting Glitnis þýddi skell fyrir Carnegie í Svíþjóð 30. september 2008 17:04
Sænski fjárfestingarbankinn Carnegie, sem er að stærstum hluta í eigu Moderna Finance, dótturfélags Milestone, féll um 17% í gær. Greining Kaupþings fjallar um málið í Hálf fimm fréttum sínum. Þar segir að gengislækkunin verði varla skýrð á annan hátt en með þeim atburðum sem áttu sér stað með þjóðnýtingu Glitnis þegar íslenska ríkið keypti um 75% hlut í bankanum og svo virðist að tengsl Milestone og Glitnis ráði þar um. Milestone er nefnilega annar stærsti hluthafinn í Glitni í gegnum Þátt eignarhaldsfélag sem heldur utan um 5,6% í íslenska bankanum. Moderna, sem áður hét Invik, á um 17,6% í Carnegie. Frá áramótum hafa hlutabréf Carnegie fallið um 59% og stóð markaðsverðmæti hans í um 60 milljörðum króna í lok dags. Carnegie tilkynnti í dag um aðgerðir sem eiga að auka skilvirkni í starfseminni og koma rekstarkostnaði á sama ról og hann var í árslok 2006. Það myndi þýða um 10% lækkun rekstrarkostnaðar. Ætlunin er að draga úr viðskiptum með gjaldeyri og erlend hlutabréf og fækka störfum. Þetta mun hafa áhrif á 40 störf og fellur einskiptiskostnaður að fjárhæð 40 milljónir sænskra króna til á þriðja ársfjórðungi.
Mest lesið Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Viðskipti innlent Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Viðskipti innlent Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Viðskipti innlent Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Viðskipti innlent Þegar þreyttir starfsmenn mæta til vinnu eftir frí Atvinnulíf Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Viðskipti erlent Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Viðskipti innlent Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Tíu prósenta tollur á færeyskar vörur Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Hagnaðist um 2,2 billjónir króna Gengi Novo Nordisk steypist niður Samkomulagið það besta mögulega í erfiðum aðstæðum Stærsti olíufundur Evrópu í áratug í Póllandi Hampiðjan kaupir ástralskan kaðlaframleiðanda Japanskir bílaframleiðendur í skýjunum eftir tollasamkomulag Hagnaðurinn af Labubu sagður hafa aukist um 350 prósent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Sjá meira