Tveggja milljarða viðbótarútgáfa krónubréfa hjá KfW 23. september 2008 11:26 MYND/365
Þýski þróunarbankinn KfW, sem er næststærsti krónubréfaútgefandinn til þessa, tilkynnti í gær um 2 milljarða króna viðbótarútgáfu í flokk krónubréfa sem er á gjalddaga 15. júlí 2010, segir í tilkynningu frá Greiningu Glitnis. Bréfin bera 9,5 prósenta vexti en athygli vekur að bréfin voru seld á yfirverði og er ávöxtunarkrafan því talsvert lægri, eða nálægt 7 prósentum. Til samanburðar er ávöxtunarkrafa á ríkisbréfaflokknum RIKB 10 0317, sem hefur lítið eitt styttri líftíma en ofangreint krónubréf, nú 13,35 prósent og því er ljóst að kaupendur útgáfunnar nú fá verulega lægri vexti fyrir sinn snúð en hægt er að nálgast á Íslandi. Að útgáfunni í gær meðtalinni telur krónubréfaflokkurinn nú 7 milljarða króna. Útgáfa mánaðarins nemur nú alls 15 milljörðum en í heild hafa 27,5 milljarðar fallið á gjalddaga í mánuðinum. Heildarútistandandi krónubréf nema nú um 306 milljörðum. Næsti krónubréfagjalddagi er 6. október næstkomandi en þá fellur á gjalddaga 29 milljarða króna útgáfa Evrópska fjárfestingarbankans. Þetta kemur fram í Morgunkorni Glitnis.
Mest lesið Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira