Mecom vildi sameina Urban og Nyhedsavisen 23. september 2008 11:03
Mecom fjölmiðlasamsteypan vildi sameina fríblöðin Urban og Nyhedsavisen að því er fram kemur í frétt í Jyllands-Posten í morgun. David Montgomery eigandi Mecom, sem aftur á Berlinske Tidende útgáfuna, lagði fram skriflegt tilboð um sameiningu blaðanna aðeins tveimur mánuðum áður en útgáfa Nyhedsavisen var lögð niður. Jyllands-Posten segir að samvinna þeirra Montgomery og Morten Lund aðaleigenda Nyhedsavisen hafi verið mun nánari en áður var talið. Samkvæmt tilboði Montgomery hefði sameiningin tryggt eigendum Nyhedsavisen 24,9% af hinni nýju útgáfu. Þess má geta að skömmu áður en tilboðið var lagt fram höfðu fríblöðin MetroXpress og 24Timer sameinast. Eins og kunnugt er af fréttum hafa danskir fjölmiðlar fjallað töluvert um meint tilboð Montgomery um að borga Morten Lund rúmlega 2 milljarða kr. fyrir að leggja Nyhedsavisen niður. Átti það tilboð að hafa komið aðeins þremur dögum áður en útgáfa Nyhedsavisen var slegin af. Báðir hafa þeir neitað að slíkt tilboð hafi verið í spilunum.
Mest lesið Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira