Greenspan segir fleiri munu verða gjaldþrota 15. september 2008 09:42 Alan Greenspan MYND/AFP
Þjóðnýting Fannie Mae og Freddie Mac, gjaldþrot Lehman Brothers, kaup Bank of America á Merrill Lynch, ásamt alvarlegum fjárhagsvandræðum Washington Mutual, áttundu stærstu bankastofnun Bandaríkjanna og AIG, stærsta tryggingarfélags landsins, eru alvarlegustu vandræði sem fjármálakerfi bandaríkjanna hefur staðið frammi fyrir síðan í heimskreppunni. Á fjármálabloggsíðum vestanhafs er nú talað um hrun fjármálakerfis landsins og verstu fjármálakreppu í sögu Bandaríkjanna.Sú spurning sem virðist á allra vörum er "hvar mun þetta allt stöðvast", því enn er allsendis óvíst að botninn sé í sjónmáli.Alan Greenspan, fyrrverandi seðlabankastjóri Bandaríkjanna, lýsti því yfir í viðtali við ABC sjónvarpsstöðina um helgina að fyrirséð væri að fleiri stór fjármálafyrirtæki yrðu gjaldþrota, þó hann vildi meina að það þyrfti ekki að vera alvarlegt vandamál ef stjórnvöld héldu rétt á spilunum."Ástandið verður stöðugt verra, og er að verða verra en nokkuð sem ég hef orðið vitni að. Og það lítur út fyrir að það eigi enn eftir að versna og við sjáum ekki til botns" sagði Greenspan sem var ómyrkur í máli. Hann staðhæfði meðal annars að Bandaríkin stæðu frammi fyrir kreppuástandi sem kæmi í versta falli upp einu sinni á hundrað ára fresti."Ég trúi því ekki að við getum tekist á við fjármálakreppu af stærðargráðu sem sést aðeins einu sinni á hundrað ára fresti án þess að heimshagkerfið gefi undan." Greenspan sagði ennfremur að ólíklegt væri að það létti á ástandinu fyrr en húsnæðisverð í Bandaríkjunum hættir að falla.Greenspan hefur undanfarið verið gagnrýndur harðlega fyrir hlutdeild sína í húsnæðis og lánsfjárblöðrunni sem olli núverandi ástandi, en meðan hann var Seðlabankastjóri vísaði hann á bug varnaðarorðum um að stýrivextir bankans væru óeðlilega lágir, skuldir almennings í Bandaríkjunum hættulega háar og húsnæðisverð óeðlilega hátt.
Mest lesið Hækka stýrivexti Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Viðskipti erlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira