Greining Glitnis dregur aðeins úr verðbólguspá sinni 25. nóvember 2008 11:33
Eftir endurskoðun á verðbólguspá sinni fyrir nóvember telur greining Glitnis að vísitala neysluverðs (VNV) muni hækka um 2,1% í mánuðinum, en upphaflega spáin hljóðaði upp á 2,3% hækkun VNV. Verðbólga undanfarinna 12 mánaða mun samkvæmt þessu mælast 17,5%. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að eftir sem áður telur greiningin að hækkun VNV nú verði fyrst og fremst drifin af verulegri verðhækkun á mat og drykk, fatnaði og húsbúnaði, en allir þessir liðir eru mjög háðir gengisþróun krónu. Á móti vegur að eldsneytisverð lækkaði talsvert í mánuðinum, og raunar öllu meira en greiningin hafði gert ráð fyrir. Einnig virðist sem ný aðferð Hagstofu við verðmælingar á bifreiðakaupum muni leiða til þess að verðhækkun í bifreiðum mælist minni en ella. Húsnæðisliður vísitölunnar mun auk þess lækka lítillega að öllum líkindum. Gengisþróun krónu verður ráðandi þáttur í verðlagsþróun á komandi mánuðum og misserum. Aðrir helstu áhrifavaldar verðbólgu, s.s. launaþróun, húsnæðisverð og hrávöruverð erlendis, munu ýmist draga úr verðbólgu eða a.m.k. ekki drífa hana áfram.Enn á eftir að koma fram töluverður hluti áhrifa af hrapi krónunnar á haustmánuðum, auk þess sem frekari veiking hennar til skamms tíma er ekki útilokuð. Því mun neysluverðlag hækka talsvert á allra næstu mánuðum og verðbólga ná hámarki í upphafi næsta árs að mati greiningarinnar.
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Fleiri fréttir Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira