Moody´s breytir horfum fyrir langtímaskuldir FIH í neikvæðar 19. september 2008 16:19
Lánshæfismatsfyrirtækið Moody's tilkynnti í dag að það hefði breytt horfum fyrir langtímaskuldir FIH Erhvervsbank, dótturfyrirtæki Kaupþings í Danmörku, í neikvæðar en þær voru áður stöðugar. Horfur fyrir skammtímaskuldir eru stöðugar.Greining Landsbanks fjallar um málið í Vegvísi sínum. Þar segir að FIH var síðast metinn með stöðugar horfur þegar lánshæfismat Kaupþings fyrir langtímaskuldir, fjárhagslegan styrk og skammtímaskuldir var lækkað í A1/C-/P-1 í lok febrúar. Við það tækifæri staðfesti Moody's lánshæfiseinkunn FIH óbreytta, A1/C+/P-1. Ástæður breytingarinnar eru að sögn Moody's áherslur í rekstri FIH, sem stefnir að því að verða leiðandi fjárfestinga- og fyrirtækjabanki í Danmörku, sem hefur leitt til þess að tekjur verða háðari markaðssveiflum en áður. Þannig vegi sjóðstreymislán og lán til fasteignakaupa þyngra í rekstri bankans en áður. Moody's vekur einnig athygli á því að þrengingar eru nú í dönsku efnahagslífi, þar á meðal á fasteignamarkaði. Lán til fyrirtækja í fasteignarekstri eða byggingariðnaði nemur um 40% af lánasafni FIH. Þá séu útlán til 20 stærstu skuldunauta bankans um þrisvar sinnum meiri en eigið fé bankans í eiginfjárþætti og lán tengd fasteignum og byggingariðnaði um þriðjungur þeirra. Moody's tekur hins vegar fram að gæði eignasafnsins séu enn mjög góð og bankinn hafi ekki lánað áhættusæknari fasteignafyrirtækjum.
Mest lesið Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Viðskipti erlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira