Hagvaxtarskeiði í Bretlandi lokið 22. ágúst 2008 09:09 Mervyn King, seðlabankastjóri Bretlands, og Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands. Talið er að vegna aðstæðna í bresku efnahagslífi sé verulega farið að þrengja að honum. Mynd/AFP
Hagkerfið stóð í stað í Bretlandi á milli mánaða í apríl og júní, samkvæmt upplýsingum hagstofunnar þar í landi. Þetta er nokkuð undir væntingum enda höfðu sérfræðingar spáð í það minnsta 0,2 prósenta hagvexti. Vísitala framleiðslu jókst engu að síður um 0,2 prósent á milli fjórðunganna og framleiðsluvísitalan um 0,8 prósent. Einkaneysla dróst saman um 0,1 prósent á sama tíma. Hagvöxtur mældist 1,4 prósent á sama tíma fyrir ári. Þar með er lokið samfelldu hagvaxtarskeiði í Bretlandi síðastliðna 63 ársfjórðunga í röð, að sögn breska ríkisútvarpsins (BBC).BBC segir þetta sömuleiðis auka líkurnar á því að breski seðlabankinn grípi til stýrivaxtalækkunar til að hinda samdrátt hagkerfisins.BBC hefur eftir hagfræðingi hjá Deutsche Bank í Bretlandi, að tölurnar sýni að breska hagkerfið sé veikt og sýni samdráttarmerki.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira