IMF: Alvarleg niðursveifla um allan heim 8. október 2008 13:50 MYND/365
Í nýrri skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fyrir októbermánuð segir að hagkerfi heimsins sé að hægja á sér og það snögglega. Fjármálakreppan sem dunið hefur yfir heiminn og hátt verð á orku og neysluvörum gerir það að verkum að heimsbyggðin glímir nú við verstu kreppu síðan á fjórða áratugi síðustu aldar. Mörg þróuð iðnríki eru á barmi kreppu. Sjóðurinn telur þó að líkurnar á heimskreppu séu litlar sem engar, en undan miklum samdrætti verði ekki komist. Í skýrslunni segir einnig að mörg ríki sem hafi verið á þróunarbrautinni síðustu áratugi glími nú við vandann eftir margra ára hagvöxt. Aðalhagfræðingur sjóðsins, Olivier Blanchard, leggur áherslu á mikilvægi þess að ríki heimsins takist nú á við vandann í samstilltu átaki. Að hans mati má búast við því að ástandið batni um mitt næsta ár, að því gefnu að þjóðum heimsins beri gæfa til að takast á við vandann í sameiningu. Þannig megi afstýra heimskreppu. Blanchard sagði á blaðamannafundi sem haldinn var í dag að leiðtogar Evrópu ættu í nokkrum erfiðleikum með að sættast á hvaða leið sé best að fara, en að ástandið á fjármálamörkuðum væri að þröngva þeim til þess að taka ákvörðun. IMF hefur á síðustu dögum endurskoðað hagspár ríkja víðsvegar um heiminn til verri vegar auk þess sem sjóðurinn metur nú skaðann af undirmálslánakrísunni mun meiri en áður var talið.
Mest lesið Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Ástandið minni á 2007 Neytendur Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Fleiri fréttir Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira