Spáir 17,8% verðbólgu í desember 15. desember 2008 11:24
Að mati greiningar Glitnis mun vísitala neysluverðs (VNV) hækka um 1,2% í desember. Gangi spáin eftir mun ársverðbólga aukast úr 17,2% í 17,8%. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Að þessu sinni gerir greiningin ráð fyrir að þeir vöruflokkar sem að mestu leyti eru innfluttir vegi þyngst til hækkunar, en það eru t.d. föt og skór, húsgögn og heimilisbúnaður og innflutt matvæli. Þó mun verðhækkun á matvælum verða minni en ella þar sem þær vörur sem mestan veltuhraða hafa í dagvöruverslunum hafa þegar tekið að lækka eftir styrkingu krónu í kjölfar enduropnunar millibankamarkaðar. Veruleg lækkun eldsneytis undanfarinn mánuð vegur á móti til lækkunar vísitölunnar, auk þess sem lítil hækkun húsnæðisliðar og þjónustu ýmis konar mun að öllum líkindum draga úr heildarhækkun VNV að þessu sinni. „Verðbólga er nú við það að ná hámarki að mati okkar. Teljum við að ársverðbólgan muni fara hæst í 18% á fyrstu mánuðum næsta árs," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira